sunnudagur, nóvember 29, 2009

Aðventa


Þá er fyrsti í aðventu í dag og styttist í jólin. Eitthvað hafði sú litla áhyggjur af því að þegar jólasveinninn færi að gefa í skóinn, myndi hann ruglast eitthvað þegar hún færi til pabba síns. Hún fer nefnilega til hans 18 des og verður framyfir nýjár. Hún spurði mömmu sína útí þetta og sagði hún að þetta væri allt í lagi.


En hún var ekki alveg sátt við svarið og til að hafa vaðið fyrir neðan sig þá stakk hún upp á því að senda sveinka tölvupóst svo hann vissi hvar hún væri. Vonandi að hann sé búinn að taka tæknina í sínar hendur.

Engin ummæli: