miðvikudagur, nóvember 25, 2009

Afmæli


Þá er hún Marín líf orðin 5 ára gömul og hefur sá viðburður ekki farið framhjá okkur í Kiðagilinu. Hún byrjaði daginn með því spyrja okkur hver væri 5 ára í dag. Síðan þurfti ég að skríða frammúr og mæla hana og smella svo nokkrum myndum, ennþá með stírurnar í augunum. Það verður haldið upp á þetta með bravúr á laugardaginn, vegna þess að enginn hefur tíma til neins nema um helgar.


Annars er lítið að frétta héðan nema að veðrið hagar sér hálfundarlega finnst mér. Mígandi rigning og snjókoma til skiptis. Allt er hvítt einn morguninn en þann næsta ausandi rigning og allt á floti allsstaðar einsog Skapti söng um hér um árið. Svo er nú bara mánuður í jólin og allt það dæmi.

Engin ummæli: