mánudagur, mars 26, 2012

föstudagur, desember 09, 2011

þriðjudagur, maí 10, 2011

Hmm


Þá er maður kominn á sjóinn aftur eftir stutta en fína landlegu. Eyddi þremur dögum með afastelpu og hitti afastrákinn líka. Sá er nú aldeilis orðinn stór og mannalegur. Vonandi fer maður nú að sjá meira af honum þegar kemur fram á sumarið og haustið.

Annars er ætlunin núna að láta þann rauða kenna á því á Reykjaneshryggnum og vonandi verður hann mættur á svæðið þegar við komum.

þriðjudagur, mars 08, 2011

Húsavík


Erum búin að eyða nokkrum dögum hér á Húsavík að líta eftir afastelpu meðan mamman er á sjúkrahúsi. Afastrákur er hjá pabba sínum á meðan. Eigum eftir að kanna ýmsa forvitnilega staði og annað slíkt sem á fjörur okkar hefur rekið hérna.

fimmtudagur, desember 30, 2010

Afabörnin mín


Það er ekkert sem jafnast á við þessi tvö. Sá litli síbrosandi og hlæjandi, stóra systir fyndin, orðheppin og heldur manni uppteknum alla daga.

þriðjudagur, desember 14, 2010

miðvikudagur, desember 01, 2010

Hmm

Húsavík á morgun að ná í afastelpu. Svo Reykjavík á föstudag.

sunnudagur, nóvember 28, 2010

Ammæli







Þessi dama hér fyrir ofan hélt upp á 6 ára afmælið sitt í gær, litli bróðir hennar var alveg standandi hissa á þessum fyrirgangi. Fórum við síðan og hittum jólasveinana úr Dimmuborgum og ekki skemmdi það fyrir.