miðvikudagur, október 29, 2008

Gaman hjá sumum


Það var brjálað að gera hjá manni í dag við að skemmta sumum. Neita því ekki að það var pínu gaman hjá mér líka. Annars er nú búið að snjóa þvílíkt hérna að það hálfa væri nóg. En við búum nú á norðlægum slóðum og svona er þetta bara.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég held að í sumum tilfellum sé jafnvel meira gaman hjá þér heldur en litlu afastelpunni þinni. Og það er alveg magnað hvað hún getur fengið þig til að gera. En svona eru þessir afar víst. Mér eru minnistæðar óteljandi snjóþotuferðir með afa þegar ég var á svipuðum aldri og Marín, hornsílaferðir í Skeggjabrekkudal og margt margt fleira. Hafið það gott í snjónum fyrir norðan. Kv þín uppáhalds eldri dóttir Þóra.