þriðjudagur, janúar 01, 2008

Gleðilegt ár


Er þá ekki komið nýtt ár eina ferðina enn og ekki yngist maður, það er á hreinu. Eina sem maður saknaði var að hafa ekki alla hérna hjá sér en það er bara svona. Heyrði aðeins í litlu í dag og það var víst all svakalega gaman hjá henni í gær, ekkert hrædd. Það var víst gaman að öllum peiku og páu ljósunum í gær að hennar sögn, svo sagði hún pæ love you allt í gúdý og lagði á. Brá útaf vananum og var ekki með kalkúna einsog venjulega, heldur eldaði ég bayonnes skinku og hreindýrafillet með porcini villisveppasósu og það var einsog smjör uppí manni svakalega gott. Held að ég eldi svoleiðis oftar.

Engin ummæli: