Það er nú frá litlu að segja hérna á þessum bæ. Engin veikindi eða annað slíkt. Helstu fréttir eru þær að maður hefur setið við tölvuna lon og don, svo að jafnvel mér finnst orðið nóg um. Kalla ég nú ekki allt ömmu mína í þeim efnum. Annars keypti ég mér uppfærslutilboð frá tölvulistanum um daginn og gekk það vægast sagt brösuglega að koma þessu öllu heim og saman. Það sem ég keypti var nýtt móðurborð, minni, örgjörvi og aflgjafi. Setti ég þetta saman og gekk svona bara la la að púsla þessu saman. Tengingar á hinum og þessum rafmagnvírum vöfðust eitthvað fyrir mér, en þetta small allt saman fyrir rest. Svo að núna er ég bara þokkalega ánægður með allt saman, og virkar þetta bara einsog best verður á kosið. Þetta er allt saman mikið öflugra en það var, kannski maður fari að setja upp fyrir aðra, aldrei að vita.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli