fimmtudagur, mars 05, 2009

Svona er maður þreyttur eftir leikskólann


Þetta er búinn að vera frekar svona viðburðaríkur mánuður hjá manni. Sú stutta flutti hingað norður með mömmu sinni og er nú aldeilis búin að halda manni uppteknum. Við höfum farið út í labbitúr, farið á snjóþotu, nokkrar ferðir í stjörnubúðina (toysRus) fyrir utan alla hlutverkaleikina sem maður þarf að leika. En nú er hún byrjuð á leikskóla þannig að nú fær hún nóga hreyfingu svo að nú get ég farð að hekla dúllur eða eitthvað. Reyndar sleppur amma hennar ekki undan þessum leikjum, nema þegar hún sest niður með prjónana og setur upp prjónasvipinn.


Ætli það sé svo ekki farið að styttast í næstu sjóferð hjá manni, því er nú andskotans verr og miður. Nennessekki. En maður er víst heppinn að hafa vinnu, störfin liggja víst ekki á lausu þessa dagana og ekki vinnur maður í lottóinu. Djö...!

Engin ummæli: