Í kvöld þegar ég var að ávíta afastelpu fyrir að vera ekki farin að sofa, segir sú stutta og réttir upp hönd. Sko afi þú ert búinn að segja þetta svo oft við mig, EKKI SEGJA ÞETTA AFTUR. Maður er bara ávítaður af afabarninu, huh. Svo í gær þá keypti ég mér svefnsófa í rúmfatalagernum og bað um að hann yrði sendur heim. Seinni part dags kemur eldri maður á sendibíl með sófann. Þegar við erum að bera hann upp tröppurnar hérna, þá hrasar karlgreyið og stingst næstum á hausinn. Heyri ég þá ekki skellihlátur úr útidyrunum og lít við. Stendur þá ekki sú litla þar og skellihlær að kallinum. Annars er allt svona frekar með rólegra móti hérna í Kiðagilinu.
1 ummæli:
Hahahahaha ég trúi ekki að hún hafi skammað þig fyrir að skamma sig.....hún er nú meiri gelgjan þó hún sé bara að verða 5 ára í ár. Knús til ykkar allra.....
Skrifa ummæli